Veðurhvellur gengur yfir landið – Reykjanesbraut líklega lokað og flugferðum flýtt
Foreldrar og forráðmenn yngstu nemenda grunnskóla eru hvattir til að fylgjast með veðurspám í fyrramálið og gera ráð fyrir að fylgja börnum til skóla, en búast má við “veðurhvelli,” þar sem vindur getur farið upp í allt að 28 m/s. Þá má búast má við því að fjöldi vega verði ófær og lokaður á morgun, miðvikudag, er „veðurhvellurinn“ fer yfir landið.
Auk þessa hafa flugfélög ákveðið að flýta ferðum og eru farþegar hvattir til að fylgjast með vef Isavia og/eða flugfélaganna.
Hér er áætlun Vegagerðarinnar um lokanir á vegum:
Suðurlandsvegur um Hellisheiði og Þrengsli milli kl. 06:00 og 12:00 – 13:00
Vesturlandsvegur um Kjalarnes milli kl. 08:00 og 11:00
Vesturlandsvegur um Hafnarfjall milli kl. 07:00 og 11:00
Reykjanesbraut milli kl. 07:00 og 11:00
Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði milli kl. 06:00 og 12:00 – 13:00
Suðurlandsvegur að Vík í Mýrdal milli kl. 07:00 og 12:00 – 13:00
Vegir á Snæfellsnesi og Brattabrekka milli kl. 07:00 og 13:00
Holtavörðuheiði milli kl. 08:00 og 13:00
Vestfirðir milli kl. 09:00 og 14:00
Vegir á Norðurlandi vestra milli kl. 09:00 og 15:00
Öxnadalsheiði milli kl. 09:00 og 15:00
Vegir á Norðausturlandi milli kl. 10:00 og 17:00
Vegir á Austurlandi frá hádegi og fram undir morgun.
Aðrir vegir geta einnig lokast á meðan veður gengur yfir