Nýjast á Local Suðurnes

Félagasamtök í Grindavík veita aðstoð fyrir jólin

Jólaaðstoð Rauða krossins, Kvenfélags Grindavíkur, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Lionsklúbbs Grindavíkur, Verkalýðsfélags Grindavíkur og Grindavíkurkirkju fer fram í ár eins og síðustu ár. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu sveitarfélagsins.

Hægt er að sækja um úthlutun með því að leggja fram umsókn í Grindavíkurkirkju virka daga á milli kl. 09:00 og 12:00 dagana frá og með 25. nóvember til og með 8. desember nk. Umsókn um jólaðastoð er að finna hér.