Valur Orri og Thelma Dís best í körfunni hjá Keflavík
Lokahóf körfuknattleiksdeildar Keflavíkur var haldið föstudaginn 15. apríl síðastliðinn, þar sem leikmenn og stuðningsmenn komu saman og áttu gott kvöld. Leikmenn voru verðlaunaðir ásamt því að úrvalslið Keflavíkur var valið og trúbadorinn Andri Ívarsson sló á létta strengi við góðar undirtektir viðstaddra.
Að venju voru verðlaun veitt þeim sem best þóttu standa sig í vetur, Valur Orri Valsson og Thelma Dís Ágústsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka karla og kvenna, en eftirfarandi aðilar fengu viðurkenningar á lokahófinu:
Bestu leikmenn í Unglingaflokki:
Unglingaflokkur karla: Magnús Már Traustason
Unglingaflokkur kvenna: Sandra Lind Þrastardóttir
Meistaraflokkur karla
Besti leikmaður: Valur Orri Valsson
Besti Varnarmaður: Reggie Dupree
Mestu framfarir: Magnús Már Traustason
Meistaraflokkur kvenna
Besti leikmaður: Thelma Dís Ágústsdóttir
Besti varnarmaður: Emelía Ósk Gunnarsdóttir
Mestu framfarir: Irena Sól Jónsdóttir
Úrvalslið Keflavíkur skipuðu:
Valur Orri Valsson
Magnús Már Traustason
Emelía Ósk Gunnarsdóttir
Thelma Dís Ágústsdóttir
Reggie Dupree