Nýjast á Local Suðurnes

Höfnuðu erindi um hækkun á íbúðarhúsi – Framkvæmdir stopp í rúmt ár

Erindi eiganda tvílyfts íbúðarhúss við Selás í Reykjanebæ varðandi 90 cm hækkun á byggingunni var hafnað af umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar á fundi ráðsins þann 19. febrúar síðastliðinn. Málið er umdeilt og sátu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í ráðinu hjá við afgreiðslu þess og lögðu fram bókun þar sem þar sem segir meðal annars “…að ekki hafi verið reynt til þrautar að finna lausnir í þessu afar óheppilega máli sem á sér langa og erfiða forsögu…”

Málið hefur verið í gangi í kerfinu í langan tíma og voru framkvæmdir við byggingu hússins stöðvaðar með ákvörðun byggingafulltrúa í desember árið 2019, en ekkert hefur verið unnið við bygginguna síðan þá. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála sem staðfesti ákvörðun byggingarfulltrúa með úrskurði í júní á síðasta ári. Í úrskurði nefndarinnar, sem skoða má í heild hér, kemur meðal annars fram að svo virðist sem mistök af hálfu beggja aðila virðast hafa valdið því að málið er komið í þennan farveg, þannig hafi byggingarfulltrúi samþykkt uppdrætti sem gerðu ráð fyrir að húsið væri rúmum meter hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir, eða 7,62 m á hæð í stað 6,3 metrar frá gólfplötu, þ.e. að gólfkótinn væri 13,20 og hæsti kóti 20,82. Þeir uppdrættir voru hins vegar ekki áritaðir af löggiltum hönnuði og því ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag og áritun þeirra ekki lögum samkvæmt, segir meðal annars í úrskurðinum.

Sem fyrr segir var erindi eiganda hússins um hækkun hafnað í kjölfar grenndarkynningar, þar sem athugasemdir bárust frá íbúum við sömu götu. Í fylgigögnum með grenndarkynningunni má þó sjá að í nokkrum tilvikum virðist sem farið hafi verið á svig við gildandi deiliskipulag í hverfinu, en bent er á nokkrar byggingar hvar hæð húsa og þakgerð er ekki í samræmi við skipulagið auk þess sem húsagerðum hafi verið breytt, úr tveggja hæða í einnar hæðar, þannig að lóðir hafi verið hækkaðar um allt að þrjá metra. Þá kemur fram í umsögn íbúa við götuna að ítrekað hafi verið bent á misræmi í hæðum og að leysa hefði mátt úr málinu með auðveldum hætti á fyrri stigum.

Meirihluti ráðsins bókaði eftirfarandi við afgreiðslu þess:

” Þak byggingar við Selás 20 er 1,6 m yfir gólfhæð stofu Seláss 15 og er því í augnhæð og þá ekki í samræmi við skilmála deiliskipulags.
Fordæmi eru í hverfinu fyrir hækkun þaks um 20-50 sm þar sem hagsmunir nágranna eru sambærilegir en ekki 90 sm hækkun eins og þessa sem kallar á meiriháttar breytingu á deiliskipulagi.
Viðlíka hækkun á þaki skapar fordæmi sem almennt drægi úr þeim gæðum hverfisins sem útsýni veitir og deiliskipulagið byggir á.
Meðalhófsreglu stjórnsýslulaga hefur verið gætt með það fyrir sjónum að leita sátta.
Erindi hafnað.”