Bílvelta á Reykjanesbraut – Ökumaður og farþegar fluttir á HSS til skoðunar
![logreglan bill](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglan-bill1.jpg?resize=620%2C264)
Mildi þykir að ekki fór verr en raun varð á þegar bifreið á slitnum sumardekkjum valt á Reykjanesbraut austan við Kaffitár í Keflavík í vikunni. Bíllinn hafði byrjað að rása og missti ökumaðurinn við það stjórn á honum. Því næst hafnaði bíllinn á ljósastaur, valt niður sneiðing og hafnaði neðst í honum. Ökumaðurinn og tveir farþegar voru komnir út úr bílnum þegar lögreglumenn á Suðurnesjum komu á vettvang. Fólkið var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum en farþegarnir ekki. Bifreiðin var mjög illa farin eftir óhappið.
Þá valt bifreið í Hvassahrauni. Ökumaðurinn kenndi eymsla eftir óhappið. Annarri bifreið var ekið á grindverk. Hún var óökufær en ekki urðu slys á fólki.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að fleiri umferðaróhöpp hafi orðið í umdæminu í vikunni en þau voru minni háttar og ekki urðu slys á fólki.