Nýjast á Local Suðurnes

Keflavík/Víðir Íslandsmeistarar í knattspyrnu

Sameinað lið Keflavík/Víðis eldri manna í +50 unnu Íslandsmótið í knattspyrnu í þessum aldursflokki. Mótið að þessu sinni var með svokölluðu hraðmótssniði þar sem leikið var í þremur hollum, byrjað 31.maí þar sem liðið gerði 3 jafntefli með markatöluna 1-1. Segir í tilkynningu frá Knattspyrnudeild Keflavíkur.

“…Það fór ekki vel í okkar menn sem reimdu takkaskónna aðeins fastar á sig í næstu umferð og unnu alla leikina og voru með markatöluna 7-1. Fyrir síðustu umferðina sem var haldin í Reykjaneshöllinni var komin sigurglampi í augun hjá þessu efnilega liði og ekker annað í stöðunni en að ráðast til sigurs. Þeir byrjuðu með látum og sigruðuð lið Þróttar Reykjavík örugglega 5-1 á eftir honum kom baráttu sigrar á móti Fylki og Gróttu og unnust þeir báðir 1-0, mótinu lauk svo með sigri á móti liði KR og titillinn í höfn.” Segir einnig í tilkynningunni.

Á myndinni eru efri röð frá vinstri: Gísli Heiðarsson, Grétar Einarsson, Björgvin Björgvinsson og Gunnar Oddson. Neðri röð frá vinstri eru: Sævar Leifsson, Björn Vilhelmsson, Jóhann B. Magnússon og Freyr Sverrisson.

Á myndina vantar þá sem tóku þátt í mótinu en áttu ekki heimagengt í lokaumferðina of það eru þeir Sigurður Garðarsson, Sigurður Björgvinsson og Ívar Guðmundsson.