Nýjast á Local Suðurnes

Skora á bankann að falla frá áformum um endurræsingu

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á eigenda kísilverksmiðju í Helguvík að falla frá áformum um endurræsingu verksmiðjunnar. Bókun þess efnis var lögð fram á bæjarstjórnarfundi þriðjudaginn 18. janúar, en hana má sjá í heild sinni hér fyrir neðan. Arion banki hefur undirritað viljayfirlýsingu um mögulega sölu á verksmiðjunni til eigenda kísilverksmiðju PCC á Bakka.

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á Arion banka að falla frá áformum um endurræsingu kísilversins í Helguvík og hefja viðræður við sveitarfélagið um aðrar og grænni leiðir.

Í síðustu viku upplýsti Kjarninn um að Arion banki og PCC SE, meirihlutaeigandi kísilversins PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík, hafi undirritað viljayfirlýsingu varðandi möguleg kaup á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Um síðustu áramót tilkynnti Skipulagsstofnun um að búið væri að ljúka mati á umhverfisáhrifum verksmiðjunnar.
Bæjaryfirvöld hafa áður lýst neikvæðri afstöðu sinni til endurræsingar og vilja til samstarfs um aðrar leiðir. Þá liggur það einnig fyrir að stærstur hluti íbúa er því algjörlega mótfallinn að verksmiðjan verði endurræst.

Nýtt mat á umhverfisáhrifum gerir lítið til þess að breyta skoðun bæjaryfirvalda og íbúa sveitarfélagsins. Það er því ljóst að framundan gætu verið harðar langvarandi deilur milli aðila, verði áfram haldið með þessi áform, sem gera ekkert annað en að valda öllum aðilum verulegum skaða.

Bæjarstjórn ítrekar því vilja sinn til samráðs um aðrar leiðir og annars konar starfsemi í Helguvík.“