Nýjast á Local Suðurnes

Unnu gull á HM í dansi

Ungir dansarar frá Danskompaní í Reykjanesbæ vann til gullverðlauna á heimsmeistaramótinu í dansi sem nú fer fram á Spáni.

Hópurinn keppti í flokknum Children Small Group Song & Dance, eða dans og söngflokki fyrir börn í litlum hópum.

Dansararnir sem skipa hópinn eru: Aðalbjörg Ósk, Andrea Ísold, Bryndís Björk, Emma Rún, Freyja Marý, Heiðrún Lind, Katla Dröfn, Rebekka Dagbjört, Sonja Rós og Valgerður Pálína og danshöfundur er Elma Rún. Atriðið heitir Yfir Vestfirðina.

Danskompaní greinir frá sigrinum á Facebooksíðu sinni.

Mynd: Facebook / Danskompaní