Nýjast á Local Suðurnes

S7 býður upp á beint flug á milli Moskvu og Íslands næsta sumar

Rússneska flugfélagið S7 mun bjóða upp á vikulegar ferðir á milli Moskvu og Keflavíkurflugvallar næsta sumar. Flogið verður alla laugardaga frá og með 9. júní og mun félagið bjóða upp á ferðirnar til 8. september.

Flogið verður frá Moscow Domodedovo flugvellinum á laugardagskvöldum og mun flugfélagið notast við Boeing 737-800 flugvélar sem taka um 170 farþega. Frá Moskvu býður félagið upp á tengiflug til fjölmargra áfangastaða í Rússlandi og utan þess, en félagið er meðal annars í samstarfi með Quatar Airwys, American Airlines, Finnair og British Airways.

Félagið hefur ekki hafið sölu á ferðunum til Íslands, en það mun gerast á næstu dögum. Áhugasamir geta skoðað möguleika á tengiflugi og fylgst með á heimasíðu félagsins.