Fjórir á fleygiferð á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi
![hradi hradamaelir](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/04/speedometer-653246_1280.jpg?resize=620%2C264)
Erlendur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 163 km. hraða á Reykjanesbraut í gærdag, þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund, kvaðst vera að flýta sér að ná flugi til heimalandsins.
Tveir ökumenn til viðbótar mældust á 139 kílómetra hraða á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi og sá fjórði ók á 135 km. hraða á Reykjanesbrautinni.