Nýjast á Local Suðurnes

Vilja byggja stóran hleðslugarð við Fitjar

Orka náttúrunnar hefur óskað eftir lóð til að stækka núverandi hleðslustöð sína við verslunarmiðstöð við Fitjar í Reykjanesbæ. Erindinu fylgja tillögur að stærð og staðsetningu lóðar.

Málið var rætt á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs sem tekur undir þau sjónarmið, sem fram koma í erindinu, að styðja þurfi við orkuskiptin og reiturinn er vel í sveit settur til þess. Ráðið telur að vinna þurfi tillögu að breytingu á deiliskipulagi með hagaðilum innan reitsins.