Nýjast á Local Suðurnes

Álagningarseðlar fasteignagjalda ekki sendir í pósti

Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjanesbæ eru einungis fáanlegir á rafrænu formi og birtir á íbúavef Reykjanesbæjar, mittreykjanes.is og vefnum island.is.

Þó geta þeir sem þess óska fengið senda álagningar- og/eða greiðsluseðla með bréfpósti með því að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar.

Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í netbanka og eru innheimtar þar, en greiðendur 76 ára og eldri fá þó áfram seðla. Gjöld ársins dreifast á 10 gjalddaga sem eru fyrsta dag hvers mánaðar frá og með 1. febrúar.