Farþegar á Keflavíkurflugvelli fá smáskilaboð
![creative takeoff kef flugv](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/03/creative-takeoff-kef-flugv.jpg?resize=620%2C264)
Ferðamenn sem eiga leið um Keflavíkurflugvöll fá nú send smáskilaboð með upplýsingum um kórónaveiruna.
Í skilaboðunum kemur meðal annars fram að ef fólk hefur verið í Kína, sérstaklega í borginni Wuhan síðustu fjórtán daga, eigi það að fylgjast með vel með heilsu sinni þangað til fjórtán dagar hafa liðið síðan það yfirgaf svæðið.
Einnig er því bent á að hafa samband við læknavaktina ef það er með hita, hósta eða eigi erfitt með andardrátt.