Nýjast á Local Suðurnes

Sjö handteknir í lögregluaðgerð – Skotvopn haldlögð

Sjö voru handteknir við húsleit lögreglunnar á Suðurnesjum í Innri-Njarðvík í gær. Lagt var hald á skotvopn og fleiri tegundir vopna, auk töluverðs magns af kannabisefnum og amfetamíni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, taldi ekki ástæðu til að gera mikið úr málinu þegar Vísir.is náði tali af honum í gær. Hann staðfesti þó að karlmaður væri í haldi lögreglu og að framundan væri yfirheyrsla.