Nýjast á Local Suðurnes

Mest lesið á árinu: Suðurnesjahjón skelltu sér í flugferð á Boeing 757

Þau Margrét Elín Arnardóttir og Tómas Beck, flugmaður og flugstjóri, skelltu sér í flugferð á einni af Boeing 757 flugvélum Icelandair til Toronto í Kanada – Það eitt og sér væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þau eru hjón, búsett á Suðurnesjum og starfa bæði hjá Icelandair.

Það gerir svo þessa fimmtu mest lesnu frétt ársins enn skemmtilegri að Tómas, sem starfar einnig sem flugkennari hjá Keili, kenndi sinni heittelskuðu réttu handtökin.