Nýjast á Local Suðurnes

Auglýsa fjölbýlishús með traustum leigutekjum frá opinberum aðilum til sölu

Fasteignasalan Fold auglýsir fjölbýlishús með 8 íbúðum og traustum leigutekjum frá opinberum aðilum til sölu. Eignin er á Ásbrú.

Í auglýsingu segir að möguleikar séu á að auka tekjur af eigninni með öðru leigufyrirkomulagi, til dæmis í ferðaþjónustu. Ásett verð er 365 milljónir króna.

Íbúðirnar eru teppalagðar, en dúkur á baðherbergi og eldhúsi. Mikið og gott skápapláss í öllum herbergjum.

Þá eru tvær geymslur í sameign á stigagöngum. Með eigninni fylgja átta 8,1m2 geymslur, samtals um 65m2, í aðskildri byggingu á baklóð og bílastæði.

Þá liggur húsið á 3582m2 lóð á góðum stað á Ásbrú með fallegu útsýni yfir Reykjanesskaga og góðri grillaðstöðu.
Eignin vel með farin og eru nýjar rafmagnstöflur og nýjir tenglar í öllum íbúðum, ásamt loftljósum. Ljósleiðari er í húsinu.

Húsið er úr timbri og klætt að utan með áli. Gluggar eru flestir vel með farnir og lóðin er gróin með grasþökum og gróðri ásamt malbikuðum bílastæðum og hellulögðum gangstéttum og lýsingu, segir í auglýsingu.