Nýjast á Local Suðurnes

Malbika Grindavíkurveg í báðar áttir

Þriðjudaginn 6. júní er stefnt á að malbika Grindavíkurveg sunnan við Norðurljósaveg í báðar áttir. Veginum verður lokað og hjáleið verður um Norðurljósaveg.

Á vef Grindavíkurbæjar segir að áætlað sé að framkvæmdirnar standi frá klukkan 08:00 til klukkan 20:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Á  meðfylgjandi mynd má sjá hjáleið.