sudurnes.net
Malbika Grindavíkurveg í báðar áttir - Local Sudurnes
Þriðjudaginn 6. júní er stefnt á að malbika Grindavíkurveg sunnan við Norðurljósaveg í báðar áttir. Veginum verður lokað og hjáleið verður um Norðurljósaveg. Á vef Grindavíkurbæjar segir að áætlað sé að framkvæmdirnar standi frá klukkan 08:00 til klukkan 20:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Á meðfylgjandi mynd má sjá hjáleið. Meira frá SuðurnesjumÍbúar í Höfnum og á Ásbrú verða án rafmagns í klukkustundFengu óvenjulegt útkall – Kafarar leita giftingarhringsGlæsileg Jóla- og Ljósahús í SuðurnesjabæLoka fyrir umferð vegna framkvæmdaMalbikunarframkvæmdir á fimmtudagVilja útsýnispall á HafnahöfnMalbika Dalsbraut – Töluvert um lokanir á götumBirta fyrstu myndirnar af gosinuSvona mun breyttur Myllubakkaskóli líta út – Myndir!Kynna viðbragðsáætlun við einelti í grunnskólum