Nýjast á Local Suðurnes

Segir Vinnumálastofnun hafa tekið enn eitt hótelið og fjölbýlishús á leigu

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, greinir frá því í pistli á Facebook að Vinnumálastofnun hafi tekið hótel og fjölbýlishús á leigu á Ásbrú. Í pistlinum, sem hefur vakið töluverða athygli, segir Ásmundur að í húsnæðinu megi hýsa allt að 220 manns.

Þá segir Ásmundur inniviði sveitarfélagsins, eins og almenningssamgöngur, skóla, heilsugæslu og félagsþjónustu löngu sprungna, í pistlinum, sem sjá má í heild hér fyrir neðan:

Reykjanesbær;
Íbúum fjölgar um 220 á einum degi.
Í lok vikunnar tók Vinnumálastofnun enn eitt hóteli á Ásbrú í leigu. Þar er ekki lengur rekin þjónusta fyrir ferðamenn, starfsfólki sagt upp og þar fá 100 hælisleitendur, 50 pör, heimili. Þá var tekin á leigu blokk þar sem þegar verður komið fyrir 60 kojum fyrir 120 manns. Það eru því alls 220 manns sem fengu húsnæði í Reykjanesbæ í vikunni. Þar eru fyrir á annað þúsund hælisleitendur og húsnæðisekla heimamanna í sögulegum ógöngum.
Þetta gerist þrátt fyrir að flestum hefur fundist nóg um fjölda hælisleitenda í bæjarfélaginu og skilningur minn og þeirra sem ég er í sambandi við að ráðamenn hafi sagt húsnæði, inniviði sveitarfélagsins, eins og almenningssamgöngur, skóla, heilsugæslu og félagsþjónustu löngu sprungna.
Fjöldi íbúa á Suðurnesjum og fólk með atvinnuleyfi hefur vantað íbúðahúsnæði. Á síðasta ári og það sem af er þessu ári þá stefnir í að 12.000 hælisleitendur komi til landsins og setji stórt strik í húsnæðismarkaðinn. Til þess að mæta þeim fjölda hefur innviðaráðherra óskað eftir breytingum á skipulagslögum svo nota megi húsnæði í iðnaðarhverfum sem íbúðir. Sá markaður er þegar sprunginn og ríkið sjálft spennir upp leigu og eftirspurn á húsnæðismarkaði með þeim afleiðingum að hér ræðst ekkert við verðbólgu og vaxtahækkanir sem koma hart niður á þeim sem skulda í húsnæði sínu og þeim sem vilja leiga húsnæði.