Áfram frítt í söfnin
Ókeypis aðgangur verður til áramóta í öll söfn Reykjanesbæjar en þau eru Byggðasafn og Listasafn Reykjanesbæjar með aðsetur í Duus Safnahúsum og Rokksafn Íslands í Hljómahöll. Þá stendur atvinnulausum til boða ókeypis lánþegaskírteini í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Á næstu vikum verður einnig boðið upp á fjölbreytta viðburðadagskrá hjá menningarstofnunum bæjarins þar sem fólk getur sótt sér símenntun, fræðslu, námskeið, leiðsagnir, farið í skipulagðar gönguferðir og margt fleira eða einfaldlega mætt á staðina og notið þess að dvelja þar.
Í október verður í fyrsta skipti gefið út sameiginlegt rafrænt fréttabréf með yfirliti yfir þá viðburði sem boðið verður upp á í haust og kemur það út mánaðarlega. Hægt verður að skrá sig á póstlista til að fá viðburðadagatalið sent. Bæjarbúar eru hvattir til þess fylgjast vel með dagskránni og nýta sér það sem boðið verður upp á í menningarlífinu.