Nýjast á Local Suðurnes

Taka lán og laga Njarðvíkurhöfn

Reykjaneshöfn hefur unnið að því síðustu mánuði að undirbúa endurbætur og stækkun á hafnaraðstöðu Njarðvíkurhafnar með það að leiðarljósi að auka viðleguöryggi innan hafnarinnar og skapa jafnfram aðstæður til aukinnar uppbyggingar á hafntengdri starfsemi á svæðinu.

Í fundargerð stjórnar kemur fram að stefnt sé að því að hefja framkvæmdir á næsta ári og var hafnarstjóra falið að óska eftir heimild Reykjanesbæjar fyrir lántöku Reykjaneshafnar vegna þeirra framkvæmda. stjórnin samþykkti þetta samhljóða á fundi sínum.