Nýjast á Local Suðurnes

Flutningabíll valt á Reykjanesbraut

Mynd: Skjáskot You-tube / Ívar Gunnarsson

Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum.

Flutningabíll valt á Reykjanesbraut í fyrradag þegar vindhviða skall á honum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að sjúkraflutningamenn hafi aðstoðað ökumanninn við að komast út um framrúðu bifreiðarinnar. Hann fann til verkja eftir óhappið.

Þá óku tveir ökumenn út af á Reykjanesbraut. Einn til viðbótar var að búa sig undir að aka inn í hringtorg og var þá ekið aftan á bifreið hans. Fleiri óhöpp urðu en þau voru smávægileg og engin slys urðu á fólki.