Nýjast á Local Suðurnes

Grúb Grúb vill risaskjá í skrúðgarðinn yfir EM í fótbolta

Fjölmiðlafyrirtækið Grúb Grúb ehf., sem rekur meðal annars svæðisútvarpsstöðina Hljóðbylguna fm 101,2 og sjónvarpsstöðina Augnablik, sem send er út á kapalkerfi Kapalvæðingar hefur sótt um aðstöðu í skrúðgarðinum yfir tímabil EM í knattspyrnu í sumar. Hugmyndin er að setja upp risaskjá á svæðið með hljóðkerfi til að sýna leiki frá mótinu.

Að sögn forsvarsmanna Grúb Grúb, hefur beiðnin þegar verið samþykkt af umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar og er unnið að nánari útsetningu á henni. Stefnt er á að setja skjáinn upp í samvinnu við veitingamönnum og öðrum áhugasömum samstarfsaðilum.