Nýjast á Local Suðurnes

Léku fótbolta til styrktar samnemanda

Nemendur í 7. bekk Stapaskóla stóðu á dögunum fyrir söfnun fyrir samnemanda sem greindist með bráðahvítblæði í byrjun mars.

Nemandinn heldur nú til Svíþjóðar í næstu viku þar sem hann fer í beinmergsskipti.

Bekkjarsystkini hans vildu ólm hjálpa honum, sem fyrr segir, og ákváðu þau að vera með fjáröflun fyrir hann. Gengið var í hús í Innri-Njarðvík og safnað áheitum fyrir fótboltamarþon, sem var í dag. Nemendurnir spiluðu fótbolta saman frá því þau mættu í skólann í dag og þangað til skóladagurinn var búinn. Það voru því þreyttir og mjög ánægðir nemendur sem fóru heim úr skólanum í gær enda gild ástæða fyrir gleðinni.

Áheitasöfnunin gekk vonum framar og var heildarupphæðin fyrir áheitin um 840.000 krónur.

Ef fleiri vilja leggja hönd á plóg þá er það enn vel þegið en leggja má inn á styrktar reikning hans: reikningsnúmerið er 0542-14-404971 og kennitalan 190808-4080.