sudurnes.net
Léku fótbolta til styrktar samnemanda - Local Sudurnes
Nemendur í 7. bekk Stapaskóla stóðu á dögunum fyrir söfnun fyrir samnemanda sem greindist með bráðahvítblæði í byrjun mars. Nemandinn heldur nú til Svíþjóðar í næstu viku þar sem hann fer í beinmergsskipti. Bekkjarsystkini hans vildu ólm hjálpa honum, sem fyrr segir, og ákváðu þau að vera með fjáröflun fyrir hann. Gengið var í hús í Innri-Njarðvík og safnað áheitum fyrir fótboltamarþon, sem var í dag. Nemendurnir spiluðu fótbolta saman frá því þau mættu í skólann í dag og þangað til skóladagurinn var búinn. Það voru því þreyttir og mjög ánægðir nemendur sem fóru heim úr skólanum í gær enda gild ástæða fyrir gleðinni. Áheitasöfnunin gekk vonum framar og var heildarupphæðin fyrir áheitin um 840.000 krónur. Ef fleiri vilja leggja hönd á plóg þá er það enn vel þegið en leggja má inn á styrktar reikning hans: reikningsnúmerið er 0542-14-404971 og kennitalan 190808-4080. Meira frá SuðurnesjumHugmyndir bæjarbúa verða að veruleikaFá endurgreiðslu á leigu vegna myglu í íbúð á ÁsbrúHluti Keflavíkurhverfis verður án rafmagns vegna viðhaldsvinnuNauðsynlegt að rífa hluta Hótel Bergs vegna myglu – Bæta við 20 herbergjumAnna nálgast sjö stafa tölu í ReykjavíkurmaraþoniSviptur á staðnum eftir hraðakstur innanbæjarVirðast seint ætla að átta sig á að flugeldasprengingar eru stranglega bannaðarHS Orka [...]