Nýjast á Local Suðurnes

Keypti skilríki í Svíþjóð og reyndi að komast til Íslands

Átta einstaklingar hafa verið staðnir að því að framvísa fölsuðum skilríkjum Í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á undanförnum dögum og sá níundi framvísaði vegabréfi sem var í eigu annars manns. Af þessum átta var á ferðinni þriggja manna fjölskylda sem framvísaði síðan réttum skilríkjum þegar lögregla ræddi við hana.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að þessi eini sem ferðaðist á skilríkjum annars manns kvaðst hafa keypt þau í Svíþjóð.