Nýjast á Local Suðurnes

Vinnumálastofnun lengir opnunartíma fyrir starfsfólk WOW

Vinnumálastofnun vekur athygli á að þeir sem hafa starfað hjá WOW air geta sótt um atvinnuleysisbætur á heimasíðu stofnunarinnar.  Áætlað er að afgreiðsla umsókna taki fjórar til sex vikur eftir að öll gögn hafa borist.

Vinnumálastofnun hvetur fólk til að hefja umsóknarferlið sem fyrst þar sem atvinnuleysisbætur eru greiddar frá þeim degi sem umsókn berst.

Allar upplýsingar  er hægt að nálgast á vefnum vmst.is.

Ef félagið verður tekið til gjaldþrotaskipta þarf fólk að hafa samband við stéttarfélag sitt eða lögmann og fá aðstoð við að lýsa kröfu í væntanlegt bú.  Ekki er greitt úr Ábyrgðasjóði launa fyrr en í fyrsta lagi eftir að kröfu hefur verið lýst og skiptastjóri hefur samþykkt kröfuna.

Á morgun föstudaginn 29. mars verður opið á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar í Kringlunni 1, í Reykjavík og Krossmóum 4 í Reykjanesbæ, á milli klukkan 13 og 16 fyrir starfsfólk WOW air sem þarfnast frekari upplýsinga en fram koma á vefnum.  Jafnframt er aðstoðað við umsókn um atvinnuleysisbætur fyrir þá sem þess óska.