sudurnes.net
Visit Reykjanesbær komin í loftið - Local Sudurnes
Reykjanesbær hefur opnað heimasíðuna Visit Reykjanesbær þar sem má nálgast margvíslegar upplýsingar um Reykjanesbæ og þá afþreyingu sem þar er í boði fyrir börn og fullorðna. Megintilgangur síðunnar er að kynna Reykjanesbæ fyrir ferðamönnum jafnt sem heimafólki auk þess að vera alhliða vettvangur fyrir verslun og þjónustu. Meðal efnis á síðunni er listi yfir fjölbreytta veitingastaði og gistingu á svæðinu auk upplýsinga um samgöngur. Sérstakur hluti er svo helgaður útivist og má þar til að mynda finna hinar ýmsu gönguleiðir á Reykjanesinu. Á síðunni er einnig viðburðadagatal með yfirliti yfir helstu viðburði sem fram fara í bænum og þar er hægt að senda inn nýja viðburði og uppákomur til birtingar í dagatalinu. Markmiðið er að Visit Reykjanesbær verði í framtíðinni sá staður þar sem hentugast er að nálgast upplýsingar um Reykjanesbæ þannig að bæjarbúar, gestir og ferðamenn getið notið þess sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða. Meira frá SuðurnesjumSamkeppni um best skreytta húsið og best skreyttu götunaHvernig sækja frumkvöðlar fé?Mikil ásókn í ljósabekkina á Sunny KefSamfylking tapaði miklu fylgi – “Lífið heldur áfram sama hvernig kosningar fara”Námskeið fyrir foreldra – Byggð á jákvæðum og árangursríkum uppeldisaðferðumMargt áhugavert í boði fyrir unglinga í Reykjanesbæ – Sjáðu bæklinginn hér!Páskaganga Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar [...]