Nýjast á Local Suðurnes

Kanna aðstæður á lagningu nýs sæ­strengs frá Grinda­vík til Írlands

Fjarskiptasjóður og Farice ehf. undirrituðu í síðasta mánuði þjónustusamning vegna ársins 2019, en félagið á og rekur fjarskiptasæstrengina FARICE-1 og DANICE sem tengja Ísland við Evrópu.

Með samningnum tekur Farice meðal annars að sér undirbúning og framkvæmd botnrannsókna sem eru nauðsynlegur þáttur í undirbúningi lagningar á nýjum fjarskipta-sæstreng milli Íslands og Evrópu.

Rann­sókn­ir á aðstæðum til að leggja nýj­an sæ­streng frá Grinda­vík til Kilalla á vest­ur­strönd Írlands eru þegar hafnar. Iris yrði þriðji sæ­streng­ur­inn á milli Íslands og Evr­ópu.

Vinna við undirbúning verkefnisins er þegar hafin. Gert er ráð fyrir að rannsóknarskip ljúki kortlagningu sjávarbotns síðla sumars með það fyrir augum að heildstæð niðurstaða rannsóknarinnar liggi fyrir fljótlega í kjölfarið.

Vinna sérfræðinga Farice felst meðal annars í því að leita eftir, meta og nýta eftir atvikum fyrirliggjandi upplýsingar og gögn sem flýtt geta framkvæmd verkefnisins og stuðlað að hagkvæmni. Í tilkynningu á vef Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins kemur fram að ekki hafi verið tekin ákvörðun um næstu skref að botnrannsóknum loknum.