Nýjast á Local Suðurnes

Grindvíkingar semja við skotbakvörð

Grindvíkingar hafa samið við erlendan leikmann fyrir komandi tímabil í Domino’s deild karla. Sá heitir Rashad Whack og er skotbakvörður að upplagi.

Whack er fæddur árið 1991, er 191 cm á hæð og 91 kg. Whack útskrifaðist frá Mount St. Marys háskólanum árið 2014 og hefur síðan þá spilað í bæði Kanada og Sviss.