Nýjast á Local Suðurnes

Þjófar á ferð á Suðurnesjum um helgina – Tekinn með stolna viftu á veitingahúsi

Karlmaður sem lagði leið sína á bókasafnið í Keflavík um helgina stal þaðan viftu sem á vegi hans varð. Lögreglan á Suðurnesjum hafði skömmu síðar upp á honum á veitingahúsi í umdæminu. Í fórum hans fannst viftan og einnig fartölva sem grunur lék á að hann hefði fengið með ólögmætum hætti. Maðurinn gaf afar ósennilegar skýringar á því hvernig hann hefði eignast þessa muni og lögregla komst fljótlega að því að hvoru tveggja væri stolið. Viftunni og tölvunni var komið í réttar hendur.

Þá barst lögreglunni tilkynning um þjófnað á humri úr frystigámi í umdæminu. Hengilás hafði verið klipptur sundur til að komast inn í gáminn. Ekki er ljóst hversu miklu magni var stolið en lögreglan rannsakar málið.