Lögreglumenn fundu kannabis í koddaveri

Lögreglumenn á Suðurnesjum fundu kannabisefni í koddaveri þegar þeir fóru í hávaðaútkall í húsnæði í umdæminu um helgina. Þegar þeir mættu á vettvang til að skakka leikinn gaus á móti þeim mikil kannabislykt úr íbúðinni.
Húsráðandi heimilaði þeim leit sem leiddi til þess að poki með kannabis fannst í koddaveri í svefnherbergi. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu á vettvangi, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.