Dan Bilzerian ber föngulega stúlku á öxlum sér um Bláa lónið – Myndband!

Glaumgosinn og pókerspilarinn Dan Bilzerian, sem hvað þekktastur er fyrir ótrúlegt úthald til skemmtana, sem hann deilir hiklaust myndum af á samfélagsmiðlunum var staddur hér á landi á dögunum.
Kappinn gisti meðal annars á Diamond Suites á Hótel Keflavík, þar sem nóttin kostar rétt um eina milljón króna. Auk þess að vera þekktur fyrir skemmtanahald af ýmsu tagi komst kappinn í sviðsljósið eftir að honum mistókst að kasta þekktri klámmyndaleikkonu ofan af þaki byggingar og ofan í sundlaug, en stúlkan slasaðist illa þegar hún lenti á sundlaugarbakkanum.
Bilzerian hefur nú birt stutt myndband frá Íslandsferð sinni og að sjálfsögðu kemur Bláa lónið fyrir, en þar sést Bilzerian bera föngulega stúlku á öxlum sér um lónið.
Myndbandið frá Íslandsferð kappans er að finna hér fyrir neðan auk myndbandsins af kappanum mistakast að henda klámmyndaleikkonunni í sundlaugina.
Instagram reikningur Dan er verulega vinsæll um allan heim enda er hann mikið fyrir það að deila myndum af sjálfum sér og hálfnöktu kvenfólki að njóta góða lífsins.