Gossvæðið lokað – Mikið að gera hjá björgunarsveitum
![FB_IMG_1616402005199](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2021/03/FB_IMG_1616402005199.jpg?resize=620%2C264)
Björgunarsveitafólk hefur komið fjölda fólks til aðstoðar við gosstöðvarnar í Geldingadal í nótt.
Meirihluti þeirra sem hafa þurft aðstoð voru örmagna eftir langa göngu, eitthvað hefur verið um smávægileg slys og nokkrir hafa villst af leið. Á annað hundrað björgunarsveitarmanna voru við leit að fólki á svæðinu í nótt og samkvæmt fréttum RÚV klukkan sjö átti enn eftir að hafa uppi á eiganda eins bíls sem er yfirgefinn á svæðinu.
Svæðið við gosstöðvarnar er nú lokað vegna gasmengunar segir í tilkynningu frá lögreglu frá því snemma í morgun.