Nýjast á Local Suðurnes

Ásmundur tekur slaginn – Sækist eftir 1.-2. sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, sækist eftir 1.-2. sæti á lista flokksins í prófkjöri fyrir komandi kosningar. Hann mun því taka slaginn við Unni Brá Konráðsdóttur, sem hefur áður sagt að hún ætli að bjóða sig fram og Ragnheiði Elínu Árnadóttur, bjóði hún fram krafta sína á ný.

Það voru Eyjafréttir sem greindu fyrst frá þessu, en í samtali við fréttastofu Rúv sagði Ásmundur að hann líti svo á að umboð þingmanna sé runnið út og það eigi einnig við um lista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Hann ætli að halda sínu striki og sækjast eftir nýju umboði kjósenda.