sudurnes.net
Ásmundur tekur slaginn - Sækist eftir 1.-2. sæti á lista Sjálfstæðisflokks - Local Sudurnes
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, sækist eftir 1.-2. sæti á lista flokksins í prófkjöri fyrir komandi kosningar. Hann mun því taka slaginn við Unni Brá Konráðsdóttur, sem hefur áður sagt að hún ætli að bjóða sig fram og Ragnheiði Elínu Árnadóttur, bjóði hún fram krafta sína á ný. Það voru Eyjafréttir sem greindu fyrst frá þessu, en í samtali við fréttastofu Rúv sagði Ásmundur að hann líti svo á að umboð þingmanna sé runnið út og það eigi einnig við um lista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Hann ætli að halda sínu striki og sækjast eftir nýju umboði kjósenda. Meira frá SuðurnesjumSterkir Víðismenn lögðu Kára á AkranesiDregur verulega úr skjálftavirkni við GrindavíkWOW-air þarf að greiða 12 farþegum bætur vegna tafaHafði uppi kynferðislegar handabendingar og tal við börnÞrjú vilja 1. sætið í prófkjöri SjálfstæðisflokksinsUm helmingur kjósenda í Suðurkjördæmi býr á Suðurnesjum – Sjáðu fimm efstu á öllum listum!Leikið á sumarflötum á Opna Nóa Siríusmótinu í LeiruBúist við mikilli eftirspurn yfir páskana – Farþegar hvattir til að bóka bílastæði fyrir brottförLoka á afgreiðslu skólamáltíða vegna ógreiddra reikningaÞéna vel í Of Monster And Men – Raða sér í efstu sæti tekjulista listamanna