sudurnes.net
Dan Bilzerian ber föngulega stúlku á öxlum sér um Bláa lónið - Myndband! - Local Sudurnes
Glaumgosinn og pókerspilarinn Dan Bilzerian, sem hvað þekktastur er fyrir ótrúlegt úthald til skemmtana, sem hann deilir hiklaust myndum af á samfélagsmiðlunum var staddur hér á landi á dögunum. Kappinn gisti meðal annars á Diamond Suites á Hótel Keflavík, þar sem nóttin kostar rétt um eina milljón króna. Auk þess að vera þekktur fyrir skemmtanahald af ýmsu tagi komst kappinn í sviðsljósið eftir að honum mistókst að kasta þekktri klámmyndaleikkonu ofan af þaki byggingar og ofan í sundlaug, en stúlkan slasaðist illa þegar hún lenti á sundlaugarbakkanum. Bilzerian hefur nú birt stutt myndband frá Íslandsferð sinni og að sjálfsögðu kemur Bláa lónið fyrir, en þar sést Bilzerian bera föngulega stúlku á öxlum sér um lónið. Myndbandið frá Íslandsferð kappans er að finna hér fyrir neðan auk myndbandsins af kappanum mistakast að henda klámmyndaleikkonunni í sundlaugina. Instagram reikningur Dan er verulega vinsæll um allan heim enda er hann mikið fyrir það að deila myndum af sjálfum sér og hálfnöktu kvenfólki að njóta góða lífsins. A photo posted by Dan Bilzerian (@danbilzerian) on Jul 8, 2016 at 4:13am PDT Meira frá SuðurnesjumUm 350.000 manns “líka við” morgunmatinn á Diamond SuitesGlaumgosinn Dan Bilzerian er ánægður með matinn á Hótel KeflavíkGlaumgosi á einkaþotu skoðaði gosið og naut sín í lóninuMöguleiki á milljón króna [...]