Nýjast á Local Suðurnes

Smit í herbúðum Njarðvíkur og næsta leik frestað

Viðureign Njarðvíkur og Stjörnunnar í Subwaydeild karla í körfuknattleik, sem átti að fara fram á fimmtudagskvöld hefur verið frestað vegna smits leikmanns Njarðvíkur. Hluti hópsins hefur verið settur í sóttkví og annar í smitgát vegna þessa.

Samkvæmt samskiptum Njarðvíkinga við KKÍ hefur leikurinn gegn Stjörnunni verið færður aftar í mánuðinn en endanleg leikdagsetning liggur ekki fyrir. Leikur Vals og Njarðvíkur í 8-liða úrslitum VÍS-bikarsins er þó enn samkvæmt áætlun 13. desember að Hlíðarenda, segir í tilkynningu á heimasíðu félagsins.