Nýjast á Local Suðurnes

Þrettándagleði slegið á frest

Ákveðið hefur verið að fresta Þrettándadagskrá í Reykjanesbæ vegna slæmrar veðurspár næstu daga. Fyrirhugaðir voru bílaútvarpstónleikar með Friðriki Dór og flugeldasýning. 

Haft var samráð haft við Veðurstofu Íslands til að meta möguleikana á því hvort skilyrði væru  til að stilla upp flugeldum og  skjóta þeim upp í framhaldi n.k. fimmtudag. Það var mat þeirra að engin skilyrði væru til þess og því hefur sú ákvörðun verið tekin að fresta fyrirhugaðri dagskrá sem voru bílaútvarpstónleikar með Friðriki Dór og flugeldasýning, segir í tilkynningu.

Möguleikar verða kannaðir á flutningi dagskrárinnar yfir á annan dag og gangi það upp verða tilkynningar þess efnis sendar út.