Fá leyfi til reksturs skemmtistaðar í umdeildu húsnæði

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt umsókn KGS veitinga ehf. um að reka skemmtistaðinn Dubliner að Hafnargötu 30. Leyfið er háð skilyrðum, en nokkrir skemmtistaðir hafa verið reknir í húsnæðinu í gegnum tíðina við mismikla ánægju nágranna sem hafa verið iðnir við að kvarta undan umgengni og hávaða.
Við afgreiðslu málsins í bæjarráði var vakin athygli á umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja og lögð áhersla á að opnunartími verði í samræmi við lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélög í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum, það er að segja að hafa má opið til 01:00 á virkum dögum og 03:00 aðfaranætur laugardaga, sunnudaga og almennra frídaga.
Rekstrarleyfið er veitt til 11.apríl 2026 í samræmi við starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.
Þá bendir bæjarráð rekstraraðila á að nágrannar hafi mótmælt því að leyfi verði veitt vegna fyrri reynslu af starfrækslu skemmtistaðar í húsnæðinu. Bæjarráð hvetur því rekstraraðila að tryggja að rekstur verði í góðri sátt við nærumhverfið og íbúa þess.