Bora í Krýsuvík

HS Orka hefur hafið rannsóknarborun á jarðhitasvæðinu við Sveifluháls í Krýsuvík. Vonir standa til þess að þar verði unnt að framleiða heitt vatn fyrir Hafnarfjörð og höfuðborgarsvæðið og rafmagn inn á landsnetið. Um 80 ár eru liðin frá því að fyrst var byrjað að bora á Krýsuvíkursvæðinu.
Jarðboranir sjá um verkið, en öllum yfirborðsrannsóknum er lokið og nú taka við rannsóknir með djúpborun. Áætlað er að stefnubora allt að 2.750 metra langa holu niður á ríflega tveggja kílómetra dýpi undir Sveifluhálsinn til norðvesturs. Markmiðið er að auka þekkingu á jarðhitakerfinu, sannreyna tilvist háhitaauðlindar og meta nýtingu hennar á svæðinu Sveifluháls – Austurengjar. Þar er gert ráð fyrir fleiri djúpum rannsóknarholum til viðbótar og er undirbúningur þegar hafinn að gerð næsta borteigs með skipulagsvinnu og mati á umhverfisáhrifum.

Ætla má að nýtt orkuver á Sveifluhálssvæðinu geti hitað upp allt að 50.000 manna byggð auk þess að hafa 100 MW rafmagnsaflgetu, segir í tilkynningu á vef fyrirtækisins sem finna má hér.
Myndir: HS Orka