Nýjast á Local Suðurnes

Yfir 1.000 umsóknir bárust Isavia um sumarstörf á Keflavíkurflugvelli

Isavia reikn­ar með að ráða um 350 manns í sum­arstörf á Kefla­vík­ur­flug­velli, þar af um 90 manns í Frí­höfn­ina. Búið er að ráða í 80-85% þess­ara starfa og munu flestir þessara starfsmanna koma af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu.

„Þetta hef­ur gengið mjög vel, og mun bet­ur en í fyrra. Við höf­um fengið fjölda góðra um­sókna og erum búin að ganga frá flest­um ráðning­um,“ seg­ir Guðni Sig­urðsson, upp­lýs­inga­full­trúi Isa­via, við vef mbl.is, en um 1.000 um­sókn­ir bár­ust fyr­ir­tæk­inu um sum­arstörf á Kefla­vík­ur­flug­velli.