Nýjast á Local Suðurnes

Hópur lögreglumanna í samfélagslöggæslu

Hópur lögreglumanna mun nú sérstaklega sjá um samfélagslöggæslu í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum og af því tilefnihefur verið stofnaður sérstakur Instagram reikningur, samfelagsloggurlss, þar sem lögregla mun vera dugleg að sýna frá lífi og starfi lögreglumanna á vakt.

Markmiðið er meðal annars að byggja upp traust milli lögreglu og samfélags, auka öryggi barna og ungmenna og draga úr ofbeldi. Að samfélaglöggæsla sé lykilþáttur í því að bregðast við áskorunum og halda áfram að byggja upp og vinna markvisst með fyrirbyggjandi aðgerðir, líkt og fræðslu og samvinnu allra. Við ætlum að fara á staði eins og skóla, leikskóla, vinnustaði, félagsmiðstöðvar, sjoppurnar og bakaríin til dæmis (hver er með bestu kleinuhringina) vegna þess að við viljum ekki að fólki haldi alltaf að eitthvað hafi komið fyrir þegar löggan mætir, segir í tilkynningu.

Hvað er samfélagslöggæsla?

Það er nálgun í löggæslu sem leggur áherslu á að efla tengsl og traust milli lögreglu og samfélags. Við viljum vera nálægt fólkinu, hlusta á þarfir þess og vinna í sameiningu að lausnum. Samfélaglöggæsla er ekki bara stefna heldur er þetta leið til að skapa samfélag þar sem allir geta notið öryggis og virðingar. Sterk samfélagslöggæsla hefur víðtæk áhrif á líf okkar allra, segir í tilkynningunni.

Þá segir að verkefnið sé þegar komið á fulla ferð og að lögreglumenn hafi til dæmis lítið við í Fjölbrautarskóla Suðurnesja og keppt í ýmsum greinum í tilefni af starfshlaupi í skólanum einnig var litið inn á árshátíð Stapaskóla.