Nýjast á Local Suðurnes

Alvarlega slasaður eftir bílveltu á Reykjanesbraut

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Karl­maður á fer­tugs­aldri slasaðist al­var­lega þegar að bíll hans valt út af Reykja­nes­braut­inni í nótt. Að sögn lög­regl­unn­ar á Suður­nesj­um var farið með mann­inn á Land­spít­al­ann þar sem hann und­ir­gengst nú aðgerð.

Farþegi sem var með mann­in­um í bíln­um slapp bet­ur og hef­ur verið út­skrifaður af slysa­deild.

Slysið átti sér stað, nærri Vog­astapa um hálfþrjú­leytið í nótt. Or­sök slyss­ins er óljós að sögn lög­reglu, en rann­sókn á til­drög­um þess eru þegar haf­inn.