Nýjast á Local Suðurnes

Umferðartafir vegna framkvæmda á Sandgerðisvegi

Í dag, þriðjudaginn 11.06.2024, mun fara fram vinna við að koma niður umferðarslaufum í Sandgerðisveg (429-02), nánar tiltekið rétt vestan við Dreifistöð RADA (Vegamótahóll).

Vinna á staðnum mun hefjast kl. 09:00 og mun standa til kl. 17:00 þann 11.06.2024.

Umferðahraðinn mun verða tekinn niður í 30km/klst., það verður umferðastjórnun á framkvæmdastaðnum og má búast við töfum vegna þessa.