Nýjast á Local Suðurnes

Réttað í Þórkötlustaðarétt á laugardaginn

Réttað verður í Þórkötlustaðarétt í Grindavík laugardaginn 17. september kl. 14:00. Réttirnar eru oftast vel sóttar af gestum og stundum má vart á milli sjá hvor hópurinn er fjölmennari, menn eða sauðfé.

Gestir eru beðnir um að sýna tillitssemi við bændur og sauðfé og er fólk hvatt til að nýta sér göngustíga meðfram Austurvegi og skilja bílana eftir heima.