Nýjast á Local Suðurnes

Minjastofnun gerir alvarlegar athugasemdir vegna framkvæmda við gatnamót

Skemmdir hafa orðið á gamla Grindavíkurveginum vegna framkvæmda við gatnamót núverandi Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar, við Bláá lónið, að sögn Minjastofnunar Íslands. Gamli Grindavíkurvegurinn var lagður á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar, frá 1914 til 1918.

Frá þessu er greint á Vísi.is, en þar kemur einnig fram að fulltrúi verktakans sagt að hann hefði engar upplýsingar haft um minjarnar eftir gamla veginn.

„Gamla veginum verður ekki raskað meira en orðið var og ætlunin er að fjarlægja grjót ofan af þeim hluta vegarins sem hulinn var,“ segir ennfremur. Minjastofnun segist gera „alvarlegar athugasemdir“ við málið og frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur, sem fjallaði um málið á fundi sínum, kveðst taka undir þær athugasemdir.