Íbúaþing um nýja menntastefnu – Íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum
Reykjanesbær heldur íbúaþing um nýja menntastefnu í Stapa þriðjudaginn 8. mars kl. 16:45 til 19:00. Allir sem hafa áhuga á skólamálum, íþróttum, tómstundum og forvarnarmálum eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum.
Eftirfarandi þættir verða til umræðu á íbúaþinginu:
Hvernig stuðlum við sameiginlega að því að undirbúa unga fólkið okkar sem best undir það að verða virkir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi á 21. öldinni?
- Hvaða þekkingu og leikni viljum við að börnin okkar og ungmenni tileinki sér með formlegri skólagöngu (leik-, grunn-, framhalds- og tónlistar)?
- Hvað viljum við að börnin okkar og ungmenni læri og tileinki sér með þátttöku í tómstundastarfi
- Hvaða leiðir er hægt að fara til þess að efla samstarf milli heimila og skóla og hvetja foreldra til þátttöku og ábyrgðar?
- Hvað einkennir gott skólasamfélag?
- Hvaða leiðir er hægt að fara til þess að ýta undir áhuga nemenda og skuldbindingu til náms nægilega snemma svo framhaldsnám gangi vel og minna verði um brotthvarf?“
- Hvaða leiðir förum við til að efla samstarf og auðvelda umskipti á milli leik og grunnskóla?
- Hvaða leiðir förum við til að efla samstarf og auðvelda umskipti á milli grunn- og framhaldsskóla?