Nýjast á Local Suðurnes

Margir á hraðferð – Einn stöðvaður á rúmlega tvöföldum leyfilegum hraða

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum kært tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var á ferð eftir Reykjanesbraut og mældist á 134 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.

Þá var ökumaður stöðvaður við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sá ók á rúmlega tvöföldum leyfilegum hraða. Hann mældist á 62 km. hraða þar sem hámarkshraði er 30 km. á klukkustund.