Tekinn á tæplega 140 km hraða á Reykjanesbraut
![logreglan sekt](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/logreglan-sekt.png?resize=620%2C264)
Tíu ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 138 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90. km. á klukkustund.
Annar ökumaður mældist á 102 km. hraða, einnig á Reykjanesbraut, á kafla þar sem hámarkshraðinn er 70 km. á klukkustund. Þá voru fáeinir ökumenn staðnir að því að virða ekki stöðvunarskyldu og einn ók sviptur ökuréttindum.